ata the one and only

Anna Þóra

03.06.2007 15:52:33 / anna

jæjajæjajæja

jæja ég held það sé á allra vorum og held að málið sé að úrskurða þessa síðu formlega dauða... Jæja greyið átti góða bloggspretti þarna á tímabili en nú er komin tími til þess að kveðja og byrja uppá nýtt.

NÝ SÍÐA hjá okkur stúlkukindunum. Ég, Guðný, María, Rannveig og Sandra erum....

 

http://www.pentanolurnar.bloggar.is  

tékk us out...


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 12:33:19 / anna

verðum á galöðunni

jæja góðir hálsar, segiði ekki bara allt gott í dag?? hleynagleið alveg hreint og bara almennt að springa úr gleði?? ég meina veðrið er allt að koma til og engin ástæða til að vera annað en í góðu skapi!! :haha:

Svo er það afmælispartýið hjá henni Maríu okkar á laugardaginn!! Orðin hvorki meira né minna en 20 ára yngismær takk fyrir. Til hamingju með þessi tímamót ljúfan :D Þannig að þeir sem fengu stórglæsilega boðskortið sem hún María gerði verða sko svo sannarlega að mæta ég vil ekki sjá neitt hálfkák fólk, ég þoli ekki hálfkák!!

En að öðrum mikilvægum málefnum! Við erum jú að setja á stokk leiksýninguna Hroki og hleypidómar. Leikritið verður frumsýnt 7.mars í Tjarnabíói. Miðasala verður í Kvennó og fer að hefjast og svo verður að sjálfsögðu hægt að kaupa miða á staðnum. Það þarf nú ekkert endilega að mæta á frumsýninguna því það verða að ég held 5 aðrar sýningar. En þetta er að verða þrususýning og mæli ég með að allir sem hafa kost á að koma að skella sér endilega. Algjört must! Þessi sýning er mjög lifandi og hress og er mikið um dans, söng kátínu og að sjálfsögðu framúrskarandi leik.

Fjölmennum í Tjarnabíó og styðjum Fúríu, Leiklistarfélag Kvennaskólans í Reykjavík


» 11 hafa sagt sína skoðun

16.02.2007 17:05:20 / anna

I´m Back

Það hlaut að koma að því að ég bloggaði aftur :haha:

Heyrðu það er margt og mikið búið að vera gerast undanfarið hjá mér! Veit varla hvar ég á að byrja.

Leiklistin er komin á fullt og fyrir ykkur sem vissu ekki af því þá erum við að setja á stokk stórverkið Hroki og Hleypidómar. Við erum að vinna með þetta sem gamanverk þannig þið þurfið ekki að hafa áhyggjur um að þetta sé einhver hundleiðinleg dramasýning. Þetta er nefninlega skemmtilegasta sýning sem þið munuð nokkurn tíman fara á!! ATH! Frumsýning er 4.mars og það eiga allir að mæta. Ef þið komist ekki þá þá þurfið þið ekki að hafa áhyggjur því það eru fleiri sýningar sem ég auglýsi síðar.

Svo var landskeppnin í eðlisfræði um daginn og ég var að sjálfsögðu fárveik helgina fyrir og þegar keppnin stóð yfir! Ég lét veikindin ekki aftra mér og tók keppnina þó framistaða mín hafi örugglega ekki verið glæsileg. T.a.m. þá mundi ég ekkert um fjaðurkraft svo steikt var ég!

Ætli þetta sé ekki nóg í bili góðir hálsar. En ætlið þið ekki að grípa gæsina volga og skella ykkur í leikhús á Hroka og Hleypidóma??:haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 05:44:01 / anna

jájájá

jæja góðir hálsar!! Þið segið það...það er komin dágóður tími síðan ég tjáði mig síðast hérna! Er ekki bara tími til komin að þið tjáið ykkur í staðin?? En fyrst ætla ég að segja nokkur orð...

Jólin eru bara búin að ganga nokkuð vel nema þá kannski það að Rannveig fór fyrr heim til Vestmanneyja en hún ætlaði þannnig að jólapakkinn náði ekki með og býr í augnablikinu hérna á Fjólugötunni! :lol: En já að öðru leyti er ég bara hleynagleið og kampakát! Svona óljós plön um áramótin komin en þetta er allt að mótast!!

En já aftur að ykkur ! Hvernig voru jólin hjá þér og eru komin einhver plön fyrir gamlárskvöld??:haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 23:48:47 / anna

vaaaandræðanlegt

jæja jæja það var víst komin til að blogga smá :D

Ef það er eitthvað helst í fréttum þá er það bara að prófin eru byrjuð og margt að ske!! Eins og ég var valin í leikhópinn í Kvennó :haha: Mjööööög spennandi og verður gaman að sjá hvernig það allt saman gengur! En já ég er að taka 3 próf: Erfðafræði, eðlisfræði og stærðfræði í þessari röð. Tók erfðafræðiprófið í gær og það gekk bara helvíti vel! Ég er farin að þekkja þennan kennara helvíti vel en ég giskaði á nákvæmlega rétt ritgerðarefni sem voru í prófinu og var búin að skrifa ritgerðina fyrir fram þannig að það var ágætlega hentugt!!

Hafið þið ekki lent í því að rekast á einhvern og þekkja manneskjuna alveg þokkalega vel hafið alveg talað við hana og svona rekist á hana tvisvar þrisvar og ekki munað hvað sú manneskja heitir!!! Frekar vandræðanlegt :| en ég lenti akkúrat í því í dag!!! Frekar mikið óþæginlegt en manneskjan vissi allt um mig!! Meira segja hvað og hvar ég er að læra en nafnið er aaaaalveg að koma :S Ef þú lest þetta sem ég hitti þá erum við að tala um að það vantar hársbreidd upp á að muna nafnið!! :Sorry :S

En annars er ég bara að fara að mæta uppá Þjóðarbókhlöðu eða Landsbókasafn eins og það heitir víst til að fara að læra stærðfræði klukkan 8 í fyrramálið!!! Eina ástæðan fyrir að ég er að mæta svona snemma er því að ég er að fara að draga Skinku svo hún læri fyrir íslensku prófið sitt en mitt próf er ekki fyrr en  næsta miðvikudag! Djöfull er ég að hafa góð áhrif hérna :haha:

anyways ég er farin að sofa til að ég geti vaknað

...yfir og út


» 11 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 22:51:39 / anna

óvart villt partý

jæja langt síðan maður lét í sér heyra!! En já það er margt og mikið búið að gerast síðan síðast. T.d. leiklistin byrjuð, prófin að skella á og að sjálfsögðu óvart villt partý! 8)

En það vildi akkúrat svo skemmtilega til að á laugardagskvöldið kíktu nokkrir vinir í heimsókn.  Fáeinir Kvennskælingar, smá Hb-staff, Benni bróðir og co. og að sjálfsögðu Húsvíkingur og félagar á svæðinu.:haha:  Allir í góðu glensi og afar hleynagleiðir en svo skall á þessi svaðalegi snjóstormur sem kaffærði bíla þar til þeir voru pikkfastir!!! Það náðu þó nokkrir að koma sér heim rétt fyrir storminn. En eftir sátu 7 manns en það var þó til allrar lukku að nóg er af rúmum í húsakynnum mínum svo allt fór ekki fyrir bí.:haha:

Árla morguns var ég vakinn við það að hún Hrönn þurfti að drífa sig af stað í skírn og þá kom sér vel að ég gat skutlað henni á jeppanum sem eru allir vegir færir. Þegar ég hafði skutlað Hrönn, Katrínu og Dabba (vin Benna), fór ég áleiðis í Björnsbakarí að kaupa bakkelsi.

Þegar heim var komið var hellt upp á rjúkandi kaffi, gert heitt súkkulaði. Lagt út ýmist álegg ásamt rúnstykkjum, vínarbrauði og súkkulaðibitakökum. Svo fór ég í það að vekja þunnt fólk út um allt hús og gleðja það með góðgætum!!

Fékk reyndar eila frá öllum að ég hlyti að vera á einhverju til að nenna slíkum aðgerðum eftir hörkudjamm og að ég væri að öllum líkindum galin! En ég meina það er bara töff! Get allaveganna bókað það að ég er afar góður gestgjafi:haha:

jæja nú er nóg komið af hátíðlegu bloggi og latiði endilega í ykkur heyra dúfurnar mínar ;)

Allir að taka þátt í skoðunnarkönnuninni :haha:


» 17 hafa sagt sína skoðun

04.11.2006 16:36:29 / anna

crazy skank

hellú hellú! Við erum að tala um það að ég er bara í tjilli á laugardegi barasta ekkert sem ég VERÐ að gera!! Vaknaði klukkan 15:00 lá upp í rúmi í svona klukkutíma fékk þá símhringingu frá Hrönn aka Skinku eða Skank sem var hálf brjáluð yfir sogbletti sem ég gaf henni í gær 8) thihihihi og þegar ég hætti að hlæja spurði hún mig en hvernig er þinn.......8| MINN já guð!!! Hljóp í spegil og sá þennan rétt út sagt myndarlega stóra sogblett á viðbeininu :| en ég meina what ever, live a little og hef nú sætt mig semi við blettinn þó það verði reynt að fela hann með öllum brögðum í kvöld þar sem ég er á leiðinni á djammið í kvöld :haha: Verð stórglæsileg með sogblettinn minn hehe :$ ;)

En það góða við þessa helgi er að ég þarf ekki að skila stúdentsritgerð og hvorki læra undir próf  né gera fyrirlestur þannig að planið er að taka hlutum í mestu ró!!! 

en látið endilega heyra í ykkur með sögum af ykkur!!! :haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 14:25:57 / anna

Heim í ruglið bara

Jæja núna er maður bara á klakanum og labbar beint inn í rugl mikið af dóti!!!

Fyrst var stærðfræðipróf  í gær

svo þarf ég að skila stúdentsritgerðinni á mánudaginn

einnig að fara í eðlisfræðipróf á mán

auðvitað þarf ég að skila 40-60 mín erfðafræði fyrirlestri um einræktun dýra

svo má ekki gleyma að skipulagning nýju tjarnadaganna er komið í gang!!! 8|

Þetta er góður slatti en ég held að ég verð að drulla mér að byrja að klára þessar ritgerð svo ég verð ekki í stresskasti á sunnudaginn :haha: Læt heyra í mér hvernig gengur!! :D


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.10.2006 12:12:59 / anna

Kvedjur fra Danmorku

hej!!

tad er buid ad vera sjukt gaman hja genginu herna i DK. Sitjum herna i huge lokudu mall-i. Gistingin er bara helviti god og allt i guddi!! Mikid verslad og reyndar ekkert svo mikid djamm en ja eg tarf ad drifa mig i metro og ja..... baebae:haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.10.2006 03:46:41 / anna

DILANA ROKKAR SJÚKT

váaaaaaaaaaaaaaaaaaa.... Ég var að enda við að koma af besta balli sem ég hef nokkurn tíman farið á!!! Magni og Dilana. Hún er bara svo endalaust flott og endalaust töff.

Trúi varla að ég hafi ekki ætlað og ég þakka Maríu Þórdísi ótrúlega mikið fyrir að bjóða mér og Elínu systur minni...Þetta var GEÐSJÚKT í einu orði! Og vitiði hvað hún greip fast í hendina á mér þegar hún var að syngja The roof is on fire :haha: Ótrúleg upplifun! Ég hef aldrei áður á balli viljað troða mér fremst og reyna að snerta söngvarann en vá ég bara varð og sé ekki eftir því get ég sagt ykkur!!! Dilana og Magni héldu stuðinu vel gangandi í fólkinu. Sérstaklega Dilana, hún er með þvílíkan sviðsjarma og tengist crow-dinu mjög vel! 

En nú er ég búin að tala nóg um hana og ballið og bara endilega tjáið ykkur um það sem liggur á hjarta ykkar :haha:


» 13 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 23:47:12 / anna

alrighty then..

Okey við ákváðum sem sé fyrir löngu síðan víst að fara ekki á ballið og í staðinn erum við að fara að DJAMMA FEITT hos Rannveig :haha: jeij jeij jeij

Hvað á að gera um helgin??

Allir að tjá sig!!! Sama hvað þú ert að fara að gera og hver þú ert???:haha:

Mundu að kjósa í skoðunarkönnuninni ef þú ert ekki búin/n að því 8) Hún er að verða djúsí!


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 16:11:34 / anna

þetta reddast...er mottó dagsins

úffff ég á að skila næstu tveimur bls. af stúdentsritgerðinni á miðvikudaginn og þar sem að það er próf í eðlisfræði á miðvikudaginn þýðir það einfaldlega að ég þarf að skrifa þær í dag :S eða réttara sagt bara Núna!! en þetta reddast fyrir horn eins og alltaf 8)

Það virðist flest allir vera að tala um Á móti Sól ballið sem er á laugardaginn og er Dillana úr Rockstar heiðurgestur kvöldsins! Hún er klárlega með geðsjúkt flott rödd og er ekkert mál að hlusta á heila tónleika með henni! Allaveganna við stelpurnar erum búnar að velta þessu fyrir okkur fram og til baka og síðast þegar ég vissi vorum við á leiðinni á eftir að kaupa miða ef það er ekki uppselt :haha:

en jámms ætlar einhver annar á ballið???

FÓLK KOMMENTA !!!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 09:41:42 / anna

skynsemin nær yfirhendinni

Vitiði ég er orðin nokkuð viss um að að það sé hægt að djamma of mikið! Maður þarf bara að kunna sér hóf, geta sagt til hvenær er skynsamlegt að djamma og hvenær ekki :haha: 

Allaveganna hafa þetta verið góðar pælingar en nú þarf ég að halda áfram að pæla í stúdentsritgerðinni, þó ég sé ekki að nenna því á engan hátt  :frown: en til að líta á björtu hliðarnar þá lærir maður mikið af þessu og þessi áfangi er búinn í lok október :haha:

heyri í ykkur


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.09.2006 15:07:24 / anna

:P

jæja þá er litla frænka loksins farin að ganga :haha: Til hamingju með árangurinn Saga mín litli posalingur :haha: 


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 15:50:51 / anna

Boten Anna...

Hun hedder Anna, Anna hedder hun......

úfffff djammdjammdjamm.... hættir aldrei og er ég ekkert ósátt við það! Maður er kannski orðinn svolítill djammfíkill þegar maður segir á mánudagsmorgun að maður trúi ekki að það séu 5 daga í föstudag og er strax farin að telja niður dagana :haha: En maður spyr sig: "Er hægt að djamma of mikið???" ;)

Er of mikið kannski .....

Júlí: Allar helgar og einn eða tveir fimmtudagar

Ágúst: Stanslaust djamm frá 3.(fim)-17.(fim)(útskriftarferð) svo koma heim og djamma fös og lau og svo allar helgar út ágúst + fim

September: Allar helgar

......kannski þarf meira til en ef  þetta er of mikið ... þá hef ég bókað djammað aðeins of mikið  8)

En vitiði ég veit ekki hvort þetta er djammfíkillinn í mér að tala en ég held að það sé eila ekki til neitt sem heitir að djamma of mikið ;)

.....hvað finnst þér?? "Er hægt að djamma of mikið???"

Vinsamlegast Commentið hugsanir og pælingar


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Dagsetning
10. febrúar 2012
Klukkan